Flugeldar, Gandálfur og Sveinsson við fánann



Allt til alls í London, þéttsetinn Ólympíumótsleikvangurinn og rétt rúmlega 80.000 manns voru viðstaddir opnunarhátíð Ólympíumótsins 2012. Helgi Sveinsson leiddi íslensku sveitina inn í mannhafið í kvöld og stóð sig með stakri prýði eins og hans var von og vísa.

Veðurguðirnir stóðu við sitt, hann hékk þurr á meðan athöfninni stóð en fór að kreista úr sér nokkra dropa þegar keppendur héldu á nýjan leik í Ólympíumótsþorpið. Á köflum rigndi í dag eins og hellt væri úr fötu og margir hverjir gráir fyrir járnum hér ytra og bjuggust við hinu versta enda þurfa keppendur jafnan að bíða í dágóðan tíma þegar marseringin á leikvanginn fer fram. Alltsaman blessaðist þetta þó á endanum og fá Bretar mikið lof fyrir framkvæmdina.

Flugeldasýningar, góð tónlist og stórleikarinn Ian McKellen sem m.a. lék Gandálf í Lord of the Rings myndunum voru í eldlínunni í kvöld á leikvanginum. Vísindamaðurinn Stephen Hawking lagði einnig í púkkið en Bretar börðu sér á brjósti á vísindasviðinu sem þema opnunarhátíðarinnar og var það vel.

Söngkonan Beverly Knight brýndi svo raust sína áður en athöfnin var öll.
Á morgun mun íslenski hópurinn hafa hægt um sig en hann hefur svo keppni föstudaginn 31. ágúst þegar allir keppendur Íslands stíga á stokk sama daginn.

Mynd/ Helgi Sveinsson með íslenska fánann skömmu áður en Ísland gekk inn á Ólympíumótsleikvanginn.