Helgi Sveinsson verður fánaberi Íslands í kvöld


Í kvöld fer setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra fram í London. Frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson verður fánaberi Íslands við hátíðina en Helgi er 33 ára gamall og keppir fyrir Ármann. Helgi rétt eins og hinir þrír keppendur Íslands á leikunum er að taka þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti.

Ísland gengur inn á eftir Ungverjum og næsta þjóð á eftir Íslandi eru Indverjar. Búist er við mikilli sýningu í kvöld en löngu er orðið uppselt á setningarhátíðina og að þessu sinni er um metsölu að ræða í miðasölu á Ólympíumót fatlaðra.

Mynd/ Helgi Sveinsson fánaberi Íslands.