RÚV mun sýna um 40-50 klukkustundir í beinni frá London


Ríkisútvarpið tilkynnti í kvöldfréttum sínum í kvöld að það myndi sýna um 40 til 50 klukkustundir í beinni útsendingu frá Ólympíumóti fatlaðra í London. Ólympíumótið hefst þann 29. ágúst næstkomandi með viðamikilli setningarathöfn en íslenski hópurinn heldur ytra á laugardag. Þetta verður í fyrsta sinn sem sýnt verður beint frá Ólympíumóti fatlaðra í íslensku sjónvarpi!

Íþróttasamband fatlaðra fagnar þessum tíðindum og hvetur sem flesta til að fylgjast grannt með gangi mála en nánar um þetta mál er hægt að sjá í kvöldfréttum hér - fréttin um Ólympíumótið hefst á 25.30 mínútu.