Sex Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi í Þýskalandi


Opna þýska meistaramótið í sundi stendur nú yfir og féllu sex Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi. Jón Margeir Sverrisson var með glæsilega bætingu í 200m. skriðsundi þegar hann kom í bakkann á 2:01,56 mín. Þessi glæsilegi tími Jóns tryggði honum sigur í sundinu og gullverðlaun um hálsinn. Jón lét ekki þar við sitja heldur setti nýtt Íslandsmet í 200m. bringusundi á tímanum 2:46,80 mín.

Önnur Íslandsmet á Opna þýska á fyrsta keppnisdegi:

Kolbrún Alda Stefánsdóttir, S14 100 m baksund 1:21,09
Thelma Björg Björnsdóttir, S6 50 m skriðsund 0:42,19
Marinó Ingi Adolfsson, S8 200 m skriðsund 2:49,26
Vignir Gunnar Hauksson, SB5 200 m bringusund 5:14,53

Mynd/ Jón Margeir synti stórvel í 200m skriðsundi í Þýskalandi.