Lokadagurinn í dag á EM


Í dag er lokakeppnisdagurinn á Evrópumeistaramótinu í Stadskanaal en þá keppa Ármenningarnir Helgi Sveinsson og Davíð Jónsson í flokki F42.

Davíð ríður á vaðið kl. 11:00 að íslenskum tíma í kúluvarpi F42 og Helgi kl. 12:00 í langstökki. Hópurinn er svo væntanlegur heim til Íslands á föstudagskvöld.

Mynd/ Helgi Sveinsson fór á kostum í spjótkastinu í gær en keppir í langstökki í dag.