Davíð nældi í brons í kúluvarpi - Helgi setti nýtt Íslandsmet í langstökki


Davíð Jónsson, Ármanni, vann í dag til bronsverðlauna á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsíþróttum sem fram fer í Stadskanaal í Hollandi. Davíð opnaði daginn með nýju Íslandsmeti í fyrsta kasti þegar hann varpaði kúlunni 11,02 metra. Hans lengst kast í dag sem tryggði honum bronsverðlaunin var 11,21 metrar. Frábær byrjun á keppnisferli Davíðs sem í dag keppti á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti.

Helgi Sveinsson hafnaði í 4. sæti í stigakeppni F42 og F44 flokkanna er hann stórbætti Íslandsmetið sitt. Eldra metið setti Helgi á Íslandsmóti ÍF á Laugardalsvelli fyrr í þessum mánuði þegar hann stökk 5,15 metra en hans lengsta stökk á EM í dag var 5,32 metrar. Stökkið dugði Helga í 4. sætið með 810 stig.

Ísland hefur nú lokið þátttöku sinni á EM fatlaðra í Hollandi og kemur hópurinn heim á föstudagskvöld með tvenn bronsverðlaun og ein silfurverðlaun í farteskinu.

Mynd/ Jón Björn: Davíð Jónsson var að vonum kampakátur með bronsverðlaunin sín í kúluvarpi í flokki F42.