Um er að ræða tvö
tveggja vikna námskeið í senn og hefst fyrsta námskeið 3. júlí og er til 13. júlí og hið seinna byrjar 16. júlí
og er til 27. júlí. Hvert námskeið er frá mánudegi til föstudags, helgar ekki
meðtaldar. Hvert násmkeið byrjar kl.08.30 á hverjum degi og stendur til kl.12.
Krakkar eiga að koma með nesti með
sér sem verður snætt í kaffitímanum/pásunni sem tekin er í kringum kl.10.
Markmið námskeiðsins eru:
• Bæta grunntækni í knattspyrnu
• Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu
• Stuðla að góðum félagsskap
• Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt
• Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu
• Að allir skemmti sér og læri eitthvað
Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða Ólafur Ólafsson formaður. Sími 8998164
Netfang ospin@ospin.is
Tveggja vikna námskeið kostar 15.000kr
Hægt er að taka eina viku geti einstaklingur af einhverjum ástæðum ekki tekið tvær vikur, þá kostar ein vika 8.000kr
Við munum reyna að púsla saman eitthvað sem virkar fyrir fólk ef það er í vandræðum með tímasetningarnar.
Hámark 20 einstaklingar á hverju námskeiði.... Miðast við sirka 5 einstaklinga á starfsmann.
Endilega vera óhrædd með fyrirspurnir eða einhverjar sér óskir, við munum reyna að skoða allt sem kemur á borðið hjá okkur.









