Árleg heimsókn Heklu


Kiwanisklúbburinn Hekla kom í síðustu viku færandi hendi á skrifstofur ÍF en klúbburinn hefur um árabil stutt dyggilega við bakið á starfsemi Íþróttasambands fatlaðra. Það var formaður ÍF, Sveinn Áki Lúðvíksson, sem tók við styrknum frá Heklumönnum og færir ÍF Heklu bestu þakkir fyrir.

Mynd/ Sveinn Áki ásamt fulltrúum frá Heklu.