Íslandsleikar í knattspyrnu á Víkingsvelli


Íslandsleikar í knattspyrnu 2012 verða í samstarfi Special Olympics á Íslandi, KSÍ og knattspyrnufélagsins Víkings. Keppt verður á Víkingsvellinum fimmtudaginn 17. maí kl. 10.00 - 13.00.
 
Keppt er í blönduðum liðum karla og kvenna, 5 eru í hverju liði og skipt er út af eins og þörf er á.
 
Skráningar þurfa að berast til skrifstofu ÍF fyrir föstudaginn 11. maí en skráningarblöð hafa þegar verið send út til aðildarfélaga ÍF.