Lágmörk og Íslandsmet komin í Túnis


Þessa dagana eru fjórir íslenskir frjálsíþróttamenn staddir í Túnis og berjast þar fyrir lágmörkum á Evrópumeistaramótið í frjálsum í sumar sem og að ná lágmörkum fyrir ólympíumót fatlaðra í London. Í snörpu samtali við Kára Jónsson landsliðsþjálfara ÍF í frjálsum kvaðst Kári ánægður með árangur gærdagsins.

Helgi Sveinsson setti nýtt Íslandsmet í flokki T42 þegar hann kom í mark í 100m hlaupi á tímanum 15,30 sek. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir setti einnig nýtt Íslandsmet í 100m hlaupi er hún hjlóp á sléttum 16,00 sek en vindurinn var +2,6 og því fæst metið ekki staðfest.

Baldur Ævar Baldursson keppti svo í kúluvarpi í gær þar sem hann hafnaði í 7. sæti er hann varpaði kúlunni 10,77 metra. Árangur gærdagsins tryggir Helga, Matthildi og Baldri Ævari þátttökurétt á EM síðar í sumar sem fram fer í Hollandi. Árangur Helga og Matthildar í gær var undir A-lágmörkum á Ólympíumót fatlaðra sem er frábær árangur en þó þau hafi náð lámörkum hefst ný barátta hjá þeim núna við aðra keppendur sem einnig hafa náð lágmörkum en aðeins þeir með bestu lágmörkin munu keppa á ólympíumótinu í London.

Keppnin heldur áfram í dag þar sem Ingeborg Eide keppir í kúluvarpi í flokki F37. Helgi Sveinsson keppir í langstökki í flokki T42 og í 200m. hlaupi og verður þar fyrsti Íslendingurinn til að keppa í langstökki á koltrefjafjöður frá Össuri! Baldur Ævar Baldursson keppir í langstökki í dag í flokki F37 og Matthildur Ylfa keppir í sama flokki í 200m. hlaupi. Það verður því nóg um að vera hjá íslenska hópnum í Túnis í dag.

Mynd/ Íslenski hópurinn í Túnis í gærkvöldi. Frá vinstri Matthildur Ylfa, Ingeborg Eide, Helgi og Baldur Ævar.