Dómaranámskeið í sundi


Eitt af helstu verkefnum foreldra barna og unglinga sem æfa og keppa í sundi er að taka þátt í sundmótum barnanna okkar. Flest störf á sundmótum eru unnin af sunddómurum.

Dómgæslan er kjörin leið fyrir foreldra til að fá innsýn í sundíþróttina og einnig gefur hún okkur ómetanlegt tækifæri til að taka þátt í því sem börnin okkar eru að gera.

Flestir sunddómarar hætta að dæma um leið og börnin þeirra hætta að æfa og keppa í sundi og því þarf stöðuga endurnýjun í dómarahópnum.

Í tengslum við sundmót Fjölnis sem fram fer dagana 3.-4. mars  í Laugardalslaug í Reykjavík,  heldur Sundsamband Íslands dómaranámskeið í Sundmiðstöðinni í Laugardal, Reykjavík, 2. hæð. Leiðbeinendur verða Ólafur Baldursson og Björn Valdimarsson.

Bókleg kennsla fer fram fimmtudaginn 1. mars kl. 18-22. Verkleg kennsla verður síðan á Fjölnismótinu 3. og 4. mars.

Skráningar og fyrirspurnir sendist á Björn Valdimarsson bjorn@danfoss.is

Mynd/ Ert þú efni í sunddómara?