Hulda og Helgi með tvö ný Íslandsmet



Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram á dögunum í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal þar sem fatlaðir keppendur tóku þátt. Helgi Sveinsson, Ármanni, setti nýtt Íslandsmet í 60m. hlaupi í flokki T42 er hann kom í mark á tímanum 9,73 sek.

Hulda Sigurjónsdóttir, Suðra, setti nýtt Íslandsmet í flokki T20 í kúluvarpi er hún sendi kúluna 8,88 metra.

Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Hulda hefur tekið vel á því í kúlunni undanfarið en hér kastar hún á Íslandsmóti ÍF utanhúss síðastliðið sumar.