Þrjú skíðanámskeið fyrir fatlaða verða haldin í Hlíðarfjalli í vetur. Námskeiðin hefjast á föstudögum kl. 17.00 og lýkur á sunnudögum kl. 16.00
Námskeiðin eru öll fyrir byrjendur og lengra komna og alla fötlunarhópa.
Hámarksfjöldi á hvert námskeið tekur mið af þörf á sérbúnaði og aðstoðarfólki. Fyrstu skráningar ganga fyrir svo fólk er hvatt til að skrá tímanlega.
Nánari upplýsingar um dagskrá verður send skráðum þátttakendum
Tímasetning námskeiða 2012
2. – 4. mars 2012
16. – 18. mars 2012 (uppselt)
13. – 15. apríl 2012
Námskeiðsgjöld eru kr. 12.000.-
Innifalið; lyftugjöld, búnaður, léttur hádegisverður kennsla og ráðgjöf
Skráningar og nánari upplýsingar;
Hlíðarfjall - elsa@saltvik.is - GSM 8642062
Íþróttasamband fatlaðra - annak@isisport.is - GSM 8975523
Helgina 17. – 19. febrúar verður haldið leiðbeinendanámskeið undir stjórn Beth Fox.
Sendar verða nánari upplýsingar um námskeiðið sem ætlað er leiðbeinendum og /eða aðstoðarfólki.