Íslandsmót ÍF í einstaklingskeppni í boccia í Vestmannaeyjum gekk mjög vel um síðastliðna helgi en umsjónaraðili mótsins var íþróttafélagið Ægir. 220 keppendur tóku þátt í mótinu en keppni er deildaskipt. Keppt var í 7 deildum þar sem keppendur geta unnið sig upp um deild. Auk deildakeppni eru sérflokkar fyrir mikið hreyfihamlaða keppendur. Í rennuflokki er notuð sérhönnuð renna til að koma boltum á völlinn og í flokki BC1-4 eru keppendur með skerta kastgetu sem ekki þurfa að nota kastrennu.
Aðstaða til keppni var mjög góð en keppt var á 18 völlum í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. Framkvæmd og skipulag mótsins var til fyrirmyndar og íþróttafélagið Ægir fékk jákvæð viðbrögð við ósk um aðstoð heimamanna vegna dómgæslu á mótinu. Markmið með því að halda þessi Íslandsmót í heimabyggð aðildarfélaga ÍF er að vekja athygli á starfsemi aðildarfélaga ÍF á hverjum stað og gildi þess að aðgengi fyrir alla sé tryggt.
Íþróttasamband fatlaðra óskar Eyjamönnum til hamingju með glæsilegt mót og óskar íþróttafélaginu Ægi velfarnaðar í sínu öfluga starfi.
Úrslit;
U flokkur
1. Ólafur Ólafsson, Ösp
2. Sigríður Jósepsdóttir, Akri
3. Birgir Sigurjónsson, Ægir
Rennuflokkur
1. Árni Sævar Gylfason, Ösp
2. Þórey Rut Jóhannesdóttir, ÍFR
3. Sigrún Sól Eyjólfsdóttir, ÍFR
BC 1 – 4
1. Aðalheiður B. Steinsdóttir, Gróska
2. Hulda Klara Ingólfsdóttir, Ösp
3. Kristín Jónsdóttir, Ösp
Deild 1
1. Arnar Már Ingibjörnsson, Nes
2. Konráð Ragnarsson, Nes
3. Kristbjörn Óskarsson, Völsungi
Deild 2
1. Sigurrós Karlsdóttir, Akri
2. Haukur Gunnarsson, ÍFR
3. Einar Sch. Thorsteinsson, Ösp
Deild 3
1. Baldur Æ Baldursson, Snerpu
2. Guðni Davíð Stefánsson, Ægi
3. Svava Vilhjálmsdóttir, Akri
Deild 4
1. Guðjón Hraunberg Björnsson, Ívar
2. Jakob B.Ingimundarson, ÍFR
3. Anna Kristinsdóttir, Snerpu
Deild 5
1. Adam Ingvarsson, ÍFR
2. Sóley S Valsdóttir, Nes
3. Sævar Bergsson, Eik
Deild 6
1. Dagur Már Jóhannsson, Völsungi
2. Gunnar Karl Haraldsson, Ægi
3. Reynir Karl Hall, ÍFR
Deild 7
1. Almar Þorsteinsson, Suðra
2. Anton Kristjánsson, Þjóti
3. Jóhanna Þ. Eiríksdóttir, Ösp
Mynd/ Sigurvegarar í 4. deild ásamt Kristínu Ósk formanni Ægis sem er lengst til vinstri á myndinni.