Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum fara fram sunnudaginn 18. september næstkomandi. Knattspyrnumótið fer fram í samstarfi við KSÍ og knattspyrnufélagið Víking og frjálsíþróttanefnd ÍF hefur umsjón með frjálsíþróttakeppni.
Keppt verður í fyrsta skipti í blönduðum liðum - Unified football - þar sem eru fatlaðir og ófatlaðir í hverju liði.
Smávægileg breyting hefur orðið á dagskránni, sjá hér að neðan:
Dagskrá;
kl. 10.00 – 12.00 Frjálsar íþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal - Upphitun 09.30
kl. 13.00 – 16.00 Knattspyrna - Knattspyrnuvöllur Víkings í Fossvogi - Upphitun 12.45
ÍF á Facebook