Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum fara fram sunnudaginn 18. september 2011. Knattspyrnumótið fer fram í samstarfi við KSÍ og knattspyrnufélagið Víking.
Dagskrá sunnudaginn 18. september
kl. 10.00 – 13.00: Frjálsar íþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal
kl. 13.30 – 16.00: Knattspyrna - Knattspyrnuvöllur Víkings í Fossvogi
Keppt verður í fyrsta skipti í blönduðum liðum - Unified football - þar sem eru fatlaðir og ófatlaðir í hverju liði. Keppt er í 7 manna liðum og koma 4 frá aðildarfélögum ÍF og 3 frá knattspyrnufélaginu Víkingi.
Skráningablöð fyrir leikana hafa verið send til aðildarfélaga ÍF en skilafrestur er til föstudagsins 9. september.
Special Olympics á Íslandi og KSÍ eru að undirbúa frekara samstarf við Ösp og Víking við að kynna Unified football á Íslandi. Verkefnið verður kynnt nánar síðar.
Finnið okkur á Facebook
Mynd/ Knattspyrnulandslið Íslands sem tók þátt á Sumarleikum Special Olympics þetta árið hafði oft ríka ástæðu til þess að fagna í Grikklandi. Kapparnir munu ekki láta sitt eftir liggja á Íslandsleikunum.