Daníel Vignir Unnarsson vann í dag til tveggja gullverðlauna í lyftingum á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu. Daníel hafði sigur í sínum flokki, 125kg. flokki í samanlögðu og vann því til tvennra gullverðlauna og tvennra silfurverðlauna.
Daníel tók gull í samanlögðu eins og áður segir og réttstöðulyftu þar sem hann hífði upp 230 kg. Þá tók hann 115 kg. í bekkpressu og 190 kg. í hnébeygju.
Flottur árangur hjá lyftingastrákunum hér í Aþenu sem hafa skemmt sér konunglega á erfiðu móti undir stjórn þjálfara síns Arnars Más Jónssonar.
Mynd/ Daníel Unnar var að vonum kátur með árangurinn í Grikklandi.