Nóg verður um að vera hjá íslenska hópnum á Special Olympics í Aþenu í dag, 1. júlí. Guðmundur Björnsson reið á vaðið í morgun í bocce þar sem hann hafði öruggan sigur í fyrsta leik. Elín og Sigurður eru einnig lögð af stað inn í síðasta golfhringinn á Glyfada-golfvellinum rétt utan við Aþenu.
Lyftingarnar hefja leik í dag og þar fer Sveinbjörn Sveinbjörnsson af stað kl. 13.30 að grískum tíma eða kl. 10.30 að íslenskum tíma. Fimleikar hafa lokið keppni á mótinu og fótboltastrákarnir hvíla sig vel í dag fyrir úrslitaleikinn gegn Svartfellingum á morgun.
Jón Gunnar syndir í undanrásum í 100m bringusundi kl. 12:10. Andri Hilmarsson syndir í 50m skriðsundi kl. 14:48 og Jón Gunnar syndir í 100m fjórsundi kl. 15:45. Þá verða þær María og Sigríður Erna á ferðinni í frjálsum, báðar keppa þær í 100m. hlaupi í dag.
Nú stendur yfir keilukeppnin og þegar þetta er ritað eru Gauti og Áslaug að spila.
Mynd/ Áslaug var í stuði þegar við litum inn í keilusalinn.