Dagana 3. – 10. júlí n.k. fer Evrópumeistaramót fatlaðra fram í Berlín. Til gamans má geta að mótið fór fram hér á landi árið 2009. Um 450 keppendur frá 37 löndum taka þátt í mótinu sem er eitt stærsta sundmót fatlaðra fyrir Ólympíumót fatlaðra sem fram fer í London 2012. Á mótinu keppa allir bestu sundmenn Evrópu og mótið því gríðarlega sterkt og þar keppa menn ekki aðeins að því að vinna til verðlauna heldur líka að því að ná tilskyldum lágmörkum fyrir London 2012.
Tveir Íslendingar verða meðal þátttakenda, þeir Jón Margeir Sverrisson, Fjölni/Ösp sem keppir í flokki þroskahamlaðra S14 og Eyþór Þrastarson, KR/ÍFR sem keppir í flokki blindra S11. Jón Margeir hefur átt góðu gengi að fagna á mótum hér innanlands sem og erlendis og sællar minningar vann Eyþór til silfurverðlauna i 400 m skriðsundi á mótinu árið 2009.
Vonandi eiga þeir félagar góðu gengi að fagna á mótinu en þjálfarar og fararstjórar eru þau Kristín Guðmundsdóttir, landsliðsþjálfari ÍF í sundi og Vadim Froafonov.
Hér neðanmáls má sjá keppnisdagskrá íslensku keppendanna en allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess www.ecswimming2011.com
Sunnudagur 3. júlí
Eyþór 100 m bak 1:18,94 1:17,53
Mánudagur 4. júlí
Jón Margeir 200 m skrið
Eyþór 50 m skrið
Þriðjudagur 5. júlí
Eyþór 400 m skrið
Miðvikudagur 6. júlí
Jón Margeir 100 m bak
Föstudagur 8. júlí
Eyþór 100 m skrið
Jón Margeir 100 m bringa
Laugardagur 9. júlí
Eyþór 200 m fjór