Íslensku keppendurnir á HM fatlaðra í sund luku þátttöku sinni á mótinu í morgun.
Eyþór Þrastarson hafnaði þá í 12. sæti í 100 m baksundi flokki S11 (flokki blindra) synti á tímanum 1:21.04 mín.
Sonja Sigurðardóttir og Hjörtur Már Ingvarsson tóku þátt í 100 m skriðsundi flokki S5 (flokki hreyfihamlaðra) og hafnaði Sonja í 15. sæti á tímanum 2:01.91 mín og Hjörtur Már í 12. sæti á tímanum 1:42.35 mín.
Í flokki S14 (flokki þroskaheftra) var keppt í 200 m skriðsundi og þar hafnaði Jón Margeir Sverrison í 15. sæti á tímanum 2:14.11 mín, Rangar Ingi Magnússon í 28. sæti á tímanum 2:29.00 mín, Aníta Ósk Hrafnsdóttir í 22. sæti á tímanum 2:52.35 mín og Kolbrún Alda Stefánsdóttir í 13. sæti á tímanum 2:38.93 mín.
Lokaathöfn mótsins fer fram á morgun, laugardag að aflokinni keppni í sjósundi.
Þrátt fyrir að einungis einn íslensku keppendanna hafi komist í úrslit var árangur okkar fólks í samræmi við þær væntingar sem til þeirra voru gerðar. Þannig voru fjögur Íslandsmet slegin á mótinu og mörg þeirra bættu sinn besta árangur.
Nú hefst af fullum þunga undirbúningur fyrir Ólympíumót fatlaðra 2012 þar sem úrtökuhóp vegna Ólympíumótsins verða sett ný markmið og lágmörk til þess öðlast þátttökurétt á því móti.