Stjórn Íþróttafélagsins Glóðar í Kópavogi hefur ákveðið að kynna nýja möguleika fyrir þá sem þurfa að nota hjólastóla og/eða göngugrindur við athafnir daglegs lífs.
Ákveðið hefur verið að hafa kynningu á “Hjólastóla- og göngugrindadansi” fyrir hádegi laugardag 14. ágúst n.k.
Kynningin verður í félagsheimilinu Boðanum, Boðaþingi 9, Kópavogi frá kl. 9:00 – 12:00. Þátttökugjald er kr. 5.000.-