Sundmaðurinn Hjörtur Már Ingvarsson frá Þorlákshöfn var á dögunum útnefndur Íþróttamaður Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2009.
Á heimasíðu Ölfus segir:
Hjörtur hefur staðið sig afskaplega vel í sundinu á liðnu ári. Hann náði þeim
merka áfanga að vera valinn í landslið Íslands til keppni á Evrópumeistaramóti
fatlaðra sem fram fór í Laugardalslauginni í október síðastliðnum. Þar vakti
hann mikla athygli fyrir keppnishörku og árangur en hann setti íslandsmet í
öllum greinum sem hann tók þátt í og synti í úrslitariðlum í sínum
fötlunarflokki. Á Íslandsmótinu í 25 metra braut í nóvember síðastliðinn
bætti hann en Íslandsmetin í sínum greinum.
Hann hefur sett alls 21
íslandsmet á árinu sem er aldeilis frábært.
Hjörtur hefur nú sett sér það
markmið að ná lágmörkum fyrir Heimsmeistaramót fatlaðra sem fram fer í Hollandi
á hausti komanda.
Íþróttasamband fatlaðra óskar Hirti til hamingju með útnefninguna.