Eyþór bætti 13 ára gamalt Íslandsmet Birkis


Þrír íslenskir sundmenn tóku þátt í undanrásum á Evrópumeistaramóti fatlaðra í morgun þegar fjórði keppnisdagur af sjö fór af stað. Eyþór Þrastarson sem í gærkvöldi landaði silfurverðlaunum í 400m. skriðsundi keppti í 50m. skriðsundi í morgun og bætti 13 ára gamalt Íslandsmet Birkis Rúnars Gunnarssonar.

Eyþór synti á tímanum 30,86 sek. en Birkir Rúnar átti gamla metið sem var 31,04 sem hann setti á Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta árið 1996. Glæsilegt met hjá Eyþóri sem engu að síður komst ekki í úrslit í greininni.

Guðmundur Hermannsson var fyrstur Íslendinga í laugina í morgun en Guðmundur keppti í 400m. sundi í flokki S9. Um gríðarlega tímabætinu var að ræða hjá Guðmundi sem var skráður til leiks á mótið með tímann 5.36,12 mín. en Guðmundur synti á tímanum 5.16,12 mín. í morgun og bætti sig því um 20 sekúndur. Magnaður árangur hjá þessum unga sundmanni en hann keppir einmitt í sama flokki og Ólafur Eiríksson gerði forðum daga. Íslandsmet Ólafs í greininni er 4.41,07 mín. sem hann setti á Ólympíumóti fatlaðra í Barcelona árið 1992.

Aníta Ósk Hrafnsdóttir keppti síðustu Íslendinga í undanrásum í 100m. bringusundi í flokki S14. Aníta synti á tímanum 1.45,60 mín. en sund hennar var dæmt ógilt og því átti hún ekki kost á því að komast í úrslit í kvöld.

Það var því enginn íslenskur sundmaður í undanrásum sem komst í úrslit fyrir kvöldið en þeir Adrian Óskar Sindelka Erwin og Skúli Steinar Pétursson keppa í beinum úrslitum í 100m. bringusundi í flokki S14 í kvöld.

Mynd/Stefán Þór Borgþórsson: Guðmundur Hermannsson bætti sig um 20 sekúndur í 400m. skriðsundi í flokki S9.