Adrian stórbætti sig í bringusundi: Líflegar undanrásir á morgun


Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi er nú langt á veg komið og að fjórum keppnisdögum loknum hafa Íslendingar einu sinni komist á verðlaunapall eftir að Eyþór Þrastarson lét að sér kveða í 400m. skriðsundi. Í kvöld áttu Íslendingar tvo sundmenn í úrlsitum en það voru þeir Adrian Óskar Sindelka Erwin og Skúli Steinar Pétursson.

Adrian stórbætti tímann sinn í 100m. bringusundi í flokki S14 (þroskahamlaðra) er hann synti á tímanum 1.29,39 mín. en Adrian var skráður til leiks á mótið á tímanum 1.34,84 mín. Frábært sund hjá Adrian sem tryggði honum fjórða sætið í greininni. Nágrannar okkar frá Færeyjum lönduðu bronsverðlaunum í þessari grein en einn sundmaður kemur frá Færeyjum á Evrópumeistaramótinu en sá heitir Ragnvaldur Atlason Jensen og synti á tímanum 1.17,20 mín.

Skúli Steinar Pétursson synti á 1.32,28 mín. en sund hans var dæmt ógilt í kvöld.

Á morgun verður mikið um að vera hjá íslensku keppendunum þar sem sjö þeirra munu synda. Fyrst af stað er Anna Kristín Jensdóttir í 100m. bringusundi í flokki SB5 (B fyrir bringusund). Þess má geta að sunddívan Kirsten Bruhn frá Þýskalandi verður í sama riðli og Anna en Bruhn á heimsmetið í greininni sem er 1.34,02 mín sem hún setti á Ólympíumóti fatlaðra í Peking.

Guðmundur Hermannsson er næstur í 50m. skriðsundi karla í flokki S9. Á eftir Guðmundi kemur Ragney Líf Stefánsdóttir í 50m. skriðsundi í flokki S10 kvenna. Þá koma næstir þeir Jón Margeir Sverrisson og Adrian Óskar í 200m. fjórsundi í flokki S14. Strax þar á eftir, eða í næstu grein, er Aníta Ósk Hrafnsdóttir í 200m. fjórsundi í kvennaflokki S14. Pálmi Guðlaugsson verður svo í undanrásum í 100m. skriðsundi karla í flokki S6 og þar verður hann í riðli með goðsögninni frá Svíþjóð, Anders Olsson sem á heimsmetið í greininni en Olsson hefur farið á kostum á Íslandi en kappinn er 44 ára gamall og í toppformi.

Allir íslensku sundmennirnir fara því í undanrásir á morgun og verður fróðlegt að sjá hverjir þeirra skila sér inn í úrslitin.

Bretar hafa farið mikinn á mótinu og unnið til 36 verðlauna eða mest allra þjóða. Úkraínumenn koma næstir Bretum með 24 verðlaun og Spánverjar verma þriðja sætið með 19 verðlaun.

Hér má svo sjá ráslistann fyrir morgundaginn þar sem Íslendingar verða fyrirferðamiklir í undanrásum.

Mynd/Stefán Þór Borgþórsson: Adrian stóð sig með sóma í bringusundinu í kvöld.