Silfur hjá Eyþóri


Sundmaðurinn Eyþór Þrastarson var rétt í þessu að taka á móti silfurverðlaunum á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi. Eyþór synti á tímanum 5:11,54 mín. í 400m. skriðsundi í flokki S11 (blindra) og varð annar á eftir Oleksandr Myroshnychenko frá Úkraínu sem hafnaði í 1. sæti.

Frábær árangur hjá Eyþóri sem er fyrstur Íslendinga á mótinu til að vinna til verðlauna. Pálmi Guðlaugsson keppti í 50m. skriðsundi í flokki S6 og hafnaði í 6. sæti á tímanum 37,38 sek. Anders Olsson var að vanda fyrirferðamikill í flokknum hjá Pálma og nældi sér í gullverðlaun í sundinu.

Til hamingju Eyþór!

Mynd/Stefán Þór Borgþórsson: Eyþór Þrastarson á verðlaunapalli í Laugardal.