Fjórir synda til úrslita í kvöld: Íslandsmet hjá Pálma!


Í kvöld verða það fjórir íslenskir sundmenn sem synda til úrslita á Evrópumeistaramóti fatlaðra í Laugardalslaug. Sundmennirnir eru Eyþór Þrastarson, Sonja Sigurðardóttir, Pálmi Guðlaugsson og Ragnar Ingi Magnússon. Eyþór ríður fyrstur á vaðið í 400m. skriðsundi sem hefst kl. 17:12.

Í morgun var Pálmi fyrstur íslensku keppendanna er hann keppti í skriðsundi í flokki S6. Pálmi synti á nýju Íslandsmeti á tímanum 37,15 sek. og var áttundi maður inn í úrslitin. Fyrra Íslandsmetið setti Pálmi í mars fyrr á þessu ári en þá var tími hans 37,85 sek. Pálmi verður í sterkum riðli í kvöld en þar hittir hann fyrir Evrópumethafann Anders Olsson frá Svíþjóð sem m.a. hefur þegar sett eitt heimsmet á mótinu.

Félagarnir Skúli Steinar Pétursson og Ragnar Ingi Magnússon voru næstir í 100m. baksundi í flokki S14 þar sem Ragnar komst inn í úrslitin en Skúli náði ekki á tímanum 1.25,36 mín. Ragnar Ingi synti á tímanum 1.16,21 mín. og bætti sig um tæpar fjórar sekúndur þar sem hann var skráður inn á mótið á tímanum 1.20,48 mín.

Aníta Ósk Hrafnsdóttir var síðust Íslendinganna í undanrásum í 100m. baksundi kvenna í flokki S14. Aníta synti á tímanum 1:41,67 mín. og var þar rétt yfir tímanum sem hún var skráð á í mótið en sá tími var 1:39,65 mín.

Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir þurftu ekki að synda í undanrásum í morgun heldur fóru þau beint inn í úrslit.

Keppnisröð íslensku sundmannanna í kvöld:

Kl. 17:12: Eyþór Þrastarson – 400m. skriðsund – S11
Kl. 17:18: Pálmi Guðlaugsson – 50m. skriðsund – S6
Kl. 20:03: Sonja Sigurðardóttir – 50m. baksund – S5
Kl. 20:28: Ragnar Ingi Magnússon – 50. baksund – S14

(Tímasetningar birtar með fyrirvara, tímasetningarnar eru endanlegar og munu haldast þær sömu ef tekst að halda áætlun. Viðbúið að smávægilegar tafir geti orðið á greinunum)

Myndir frá Laugardalslaug í morgun

Mynd/Stefán Þór Borgþórsson: Ragnar Ingi Magnússon á fullri ferð í baksundinu í morgun.