Hjörtur bætti Íslandmetið enn á ný


Fyrsta keppnisdeginum á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi er nú lokið og bar það helst til tíðinda af íslensku keppendunum að Hjörtur Már Ingvarsson sundmaður hjá ÍFR tvíbætti sitt eigið Íslandsmet í dag.

Hjörtur átti fyrir daginn í dag Íslandsmetið í 50m. skriðsundi karla í flokki S5 en metið setti hann í mars í Ásvallalaug og var það 54,23 sek. Í undanrásum í morgun synti Hjörtur Már á 50,36 sek. og bætti þar metið sitt um tæpar 4 sekúndur. Í úrslitum í kvöld hafnaði Hjörtur í 8. sæti en bætti engu að síður Íslandsmetið á nýjan leik er hann synti á tímanum 50,09 sek. Magnaður árangur hjá þessum 14 ára gamla sundmanni sem er að keppa á sínu fyrsta alþjóðlega stórmóti.

Sonja Sigurðardóttir hafnaði svo í 8. sæti í 50m. skriðsundi kvenna. Hún var síðust inn í úrslit eftir undanrásir í dag á tímanum á 57,22 sek. en hún synti svo á tímanum 58,62 sek. í úrslitum.

Alls voru það sex heimsmet og átta Evrópumet sem féllu á þessum fyrsta keppnisdegi í dag og ljóst að allir helstu og bestu sundmenn álfunnar úr röðum fatlaðra eru komnir í Laugardalinn til þess að láta vel að sér kveða.

Úrslit og ráslista má finna á www.ifsport.is/ec2009

Sjá dagskrá mótsins hér

Myndir/ Sölvi Logason: Brosmildi baráttujaxlinn frá Þorlákshöfn, Hjörtur Már Ingvarsson, er hér á efri myndinni en á þeirri neðri er Reykjavíkurmærin Sonja Sigurðardóttir. Þess má geta að bæði Hjörtur og Sonja synda fyrir Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, ÍFR.