Undirbúningurinn á lokasprettinum fyrir EM


Fjölmenni hefur hreiðrað um sig í innilauginni í Laugardal en þar hefst Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi n.k. sunnudag. Undirbúningur mótsins er nú á lokasprettinum og spennan farin að gera vart um sig enda von á sterku móti þar sem bestu sundmenn álfunnar eru samankomnir.

Keppnin hefst á sunnudag kl. 09:00 með  undanrásum og þann sama dag kl. 17:00 hefjast úrslit. Mótið mun svo standa yfir til 24. október. Mikið líf var í innilauginni í dag þar sem gestaþjóðirnar æfðu af kappi sem og íslenska sveitin sem telur 13 manns á mótinu.

Mynd: Liðsmenn tækniherbergisins unnu hörðum höndum í allan dag en gáfu sér þó tíma til að brosa þegar ljósmyndari ÍF leit við.