Íslandsmót í boccia 2009 á Selfossi


200 keppendur frá 15 aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra tóku þátt í Íslandsmóti í boccia, einstaklingskeppni sem fram fór um helgina á Selfossi. Keppni var að ljúka en á sunnudagskvöld var haldið lokahóf á Hótel Selfossi.

Íþróttafélagið Suðri á Selfossi sem er eitt af aðildarfélögum ÍF sá um framkvæmd mótsins í samvinnu við boccianefnd ÍF. Keppt var í tveimur íþróttahúsum, íþróttahúsinu Iðu og íþróttahúsinu Sólvöllum. Nemendur FSU sáu um dómgæslu á mótinu ásamt félagsmönnum áhugafélags um íþróttir aldraðra og fleiri aðilum. Íþróttafélagið Suðri naut aðstoðar fjölda fólks á Selfossi og nágrenni við undirbúning og framkvæmd mótsins. Fyrirtæki styrktu verkefnið og íþróttafélagið nýtur greinilega mikils velvilja á Suðurlandi. Öll framkvæmd mótsins var íþróttafélaginu Suðra til mikils sóma og félagsmenn Suðra stóðu sig allir mjög vel á heimavelli.

Úrslit
1. deild

1. Hjalti B Eiðsson ÍFR 2. Guðlaugur J.B. Hannesson ÍFR 3. Kristbjörn Óskarsson,
Völsungi

2. deild
1. Kristín Ólafsdóttir, Eik 2. Kristófer Ástvaldsson, Viljanum 3. Benedikt
Ingvarsson, Ösp

3. deild
1. Reynir Ingólfsson, Suðra 2. Einar Sigurðsson Þjóti 3. Heiðrún S Jónasdóttir Snerpu

4.deild
1. Sigurrósk Karlsdóttir, Akri 2. Haukur Gunnarsson ÍFR 3. Hulda Sigurjónsdóttir Suðra

5. deild
1. Sigvaldi Heiðarsson ÍFR 2. Magnús H Guðmundsson Ívari, Sölvi Víkingsson Eik

6. deild
1. Þórarinn Á. Jónsson Ægi 2. Lúðvik Frímannsson ÍFR 3. Hallgrímur Hallgrímsson Suðra

7. deild
1. Jakob B Ingimundarson ÍFR 2. Jón Óskar Ísleifsson Eik 3. Lovísa H Pálsdóttir ÍFR

U flokkur
1. Díana Björk Friðriksdóttir , Akri 2. Sigríður Þ. Jósepsdóttir, Akri

Rennuflokkur
1. Kristófer Skúlason, Suðra 2. Ragnheiður Á Sveinbjörnsdóttir, Ívari 3. Árni Sævar
Gylfason, Ösp

Flokkur BC1 - BC4
1. Aðalheiður B Steinsdóttir Grósku 2. Kristín Jónsdóttir Ösp 3. Hulda Klara
Ingólfsdóttir Ösp

Myndasafn frá mótinu má nálgast hér.

Mynd: Frá mótinu á Selfossi um helgina.