Sparkvallaæfing ÍF og KSÍ sunnudaginn 6. september


Sunnudaginn 6. september fer fram sparkvallaæfing Íþróttasambands fatlaðra og Knattspyrnusambands Íslands. Æfingin fer fram á sparkvellinum við Laugarnesskóla, gegnt KSÍ.

Það eru Marta og María Ólafsdætur sem stýra æfingunni ásamt góðum gestum en æfingin hefst kl. 13:00 og eru sem flestir hvattir til þess að mæta, stelpur jafnt sem strákar.