Sterkasti fatlaði maður heims


Dagana 2. október og 3. október 2009 verður  haldið heimsmeistaramót í aflraunum fatlaðra í Reykjavík. Er þetta í  sjöunda skiptið sem mót þetta er haldið á Íslandi. Mótið verður haldið 2. okt. í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og 3. okt. og við íþróttahús fatlaðra Hátúni 14.

Verðlaunaafhending fer fram í íþróttahúsi ÍFR að mótinu loknu. Keppt verður í tveimur flokkum þ.e. flokki hjólastóla og flokki standandi. Þroskaheftum er heimil þátttaka í báðum flokkum. Keppt verður í átta keppnisgreinu í flokki hjólastóla og átta keppnisgreinum í flokki standandi, alls sextán keppnisgreinar.

Keppt verður í að draga hönd yfir hönd, uxaganga, drumbalyftu, axlalyftu, bóndagöngu, steinatökum, herkulesarhaldi, dekkjaveltu, öxullyfta og hleðslugrein. Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík á www.ifr.is

Mótið verður sýnt í sérstökum þætti á RÚV árið 2010. Nánari upplýsingar fást hjá skipuleggjendum.

Arnar Már Jónsson þjálfari IFR
E-mail loggurinn@hotmail.com
Sími 868-6823

Gemma Magnússon
E-mail gemmamagnusson@gmail.com
Sími 696-4681

Mynd: Frá keppninni Sterkasti fatlaði maður heims í fyrra. Hér er Alexander Harðarson í hrikalegum átökum í Smáralind.