Sparkvallaátak ÍF og KSÍ heldur áfram


Alls voru níu iðkendur mættir á æfingu í sparkvallaátaki ÍF og KSÍ sem fram fór síðasta sunnudag á sparkvellinum við Laugarnesskóla, gengt KSÍ. Atli Viða Björnsson landsliðsmaður í knattspyrnu mætti á æfinguna og lét til sín taka en æfingin var undir stjórn þeirra Mörtu og Maríu Ólafsdætra.

Næsta æfing verður sunnudaginn 6. september kl. 13:00 við Laugarnesskóla og er allir hvattir til þess að fjölmenna á æfinguna, stelpur jafnt sem strákar.

Hér er hægt að nálgast smávegis myndasafn frá æfingunni:
http://if.123.is/album/default.aspx?aid=157876