Dagana 15.-25. október fer fram Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi.
Keppt verður í innilauginni í Laugardal og er von á rúmlega 400 sundmönnum til
landsins og í fylgd með þeim verða um 200 aðstoðarmenn. Um risamót er að ræða
þar sem allir helstu sundmenn úr röðum fatlaðra í Evrópu munu koma saman. Mótið
er einstakt fyrir þær sakir að í fyrsta sinn síðan árið 2000 munu þroskaheftir
keppa með á móti Alþjóðaólympíuhreyfingu fatlaðra. Prófsteinninn er því ærlegur
og því leitar Íþróttasamband fatlaðra eftir sjálfboðaliðum til aðstoðar alla
mótsdagana svo keppnin geti orðið sem veglegust og gengið sem best fyrir
sig.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu
Íþróttasambands fatlaðra í síma 514 4080 eða á if@isisport.is
Sjálfboðaliðstörf
sem óskast eru:
Aðstoð í tækniherbergi mótsins
Aðstoð
við úrslit mótsins (hengja upp úrslit og koma þeim á keppendaþjóðir
mótsins)
Aðstoð við riðlaherbergi mótsins (hleypa keppendum inn á
laugarbakkann í keppni)
Aðstoð við körfuburð á sundbakka (fyrir
keppendur)
Aðstoð við verðlaunaafhendingu (einungis frá 17:00 fram eftir
kvöldi)
Aðstoð við rekstur kaffiteríu
Aðstoð við við rekstur
upplýsingaskrifstofu í Laugardalslaug
Aðstoð við afhendingu
einkennisspjalda
Aðstoð við hin ýmsu sendlastörf
Aðstoð í matsal
keppenda
Aðstoð við fánamál í verðlaunaafhendingum
Aðstoð við gestaþjóðir
mótsins fyrstu dagana á Íslandi (fer fram á Hótelum)
Áætlað er að
dagana 15.-25. október muni vera þörf á aðstoð frá um kl. 08:00-10:30 og aftur
16:00-21:00. Keppnin sjálf mun fara fram 18.-24. október og þá verður þörfin
fyrir aðstoð hvað einna mest.
Þriðjudagur. 25 ágúst 2009