Á morgun, laugardaginn 22. ágúst, fer hið árlega Reykjavíkurmaraþon fram. Dagskráin við Lækjargötu verður sem hér segir:
08:40 Maraþon og hálfmaraþon ræst út
09:30 10 km hlaup ræst út
11:15 Upphitun fyrir Skemmtiskokk
11:30 Skemmtiskokk 3 km ræst út
15:40 Formlegri tímatöku hætt
Íslandsbanki mun halda áfram þeirri hefð að heita 1000 kr. á hvern viðskiptavin bankans sem hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu, sem viðkomandi getur síðan ráðstafað til þess góðgerðarfélags sem hann eða hún kýs.
Nánar um Reykjavíkurmaraþonið á www.islandsbanki.is/marathon