Eunice Kennedy stofnandi SO látin


Eunice Kennedy Shriver lést í nótt 88 ára að aldri en hún er stofnandi Special Olympics samtakanna. Eunice er yngri systir fyrrum Bandaríkjaforsetans John F. Kennedy og móðir Mariu Shriver Schwarzenegger eiginkonu Arnolds Scwarzenegger fylkisstjóra í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Dánarorsök hefur ekki verið tilgreind að svo stöddu en síðustu vikur hafði Eunice dvalið á Cape Cod sjúkarhúsinu í Massachusets.

Árið 1968 skipulagði Eunice fyrstu Special Olympics leikana og mun hún hafa snúið sér að íþróttum þroskaheftra af mikilli ástríðu í gegnum systur sína Rosemary sem var greindarskert. Í dag er sonur Eunice Kennedy, Timothy Kennedy Shriver forsvarsmaður samtakanna.

Eunice Kennedy Shriver var hugsjónamanneskja sem hefur frá stofnun Special Olympics
samtakanna látið sig varða málefni þroskaheftra einstaklinga. Samtökin voru upphaflega stofnuð sem íþróttasamtök þar sem boðið var upp á æfingar og keppni fyrir þroskahefta. Sífellt aukin áhersla hefur verið lögð á aðra þætti sem varða hagsmuni þroskaheftra og almenn mannréttindi s.s. aðgengi að menntun og heilbrigðiskerfi. Samtökin eru með starfsemi um heim allan og með alþjóðaskrifstofu í Washington og Evrópuskrifstofu í Brussel.

Mynd: Eunice Kennedy Shriver