Keppendur á heimsleikum þroskaheftra komu heim í dag


Þeir Ragnar Ingi Magnússon, íþróttafélaginu Firði Hafnarfirði og Jón Margeir Sverrisson, íþróttafélaginu Ösp komu til landsins í dag eftir þátttöku á Heimsleikum þroskaheftra í Tékklandi. Heildarúrslit hafa áður verið send auk upplýsinga um leikana.

Sendi hjálagt mynd sem ég tók við heimkomuna í dag. Þessir ungu sundmenn bættu árangur sinn í hverri grein og eru framtíðarefni.

Mynd; f.v. Jón Margeir Sverrisson, Ragnar Ingi Magnússon