Vel heppnað mót að baki í Svíþjóð


Þá er Norræna barna- og unglingamótinu lokið og íslenski hópurinn kominn heim frá Svíþjóð en mótið fór fram þar í landi dagana 26. júní til 3. júlí. Alls voru 14 keppendur frá aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra sem tóku þátt á mótinu fyrir Íslands hönd og 6 fararstjórar og því voru Íslendingar 20 talsins í Eskilstuna. Veðrið lék við hópinn alla vikuna ytra en þess má til gamans geta að fyrstu rigningardroparnir féllu þegar íslenski hópurinn hafði komið sér fyrir í rútunni á leið sinni til Arlanda flugvallarins í Stokkhólmi.

Að þessu sinni voru 11 keppendur í sundi og 3 í frjálsum íþróttum og stóðu þau sig öll með eindæmum vel. Margir hverjir voru við sinn besta árangur og sumir stórbættu sig enda stífar æfingar alla dagana ytra ásamt keppni. Þjálfarar í ferðinni voru þau María Ólafsdóttir og Egill Þór Valgeirsson og stýrðu þau æfingum og keppni af mikilli röggsemi.

Í íslenska hópnum gaf að líta marga efnilega einstaklinga sem vafalítið eiga eftir að láta vel að sér kveða í framtíðinni, ef þau eru dugleg að æfa áfram af sama kappi og þau gera nú.

Norræna barna- og unglingamótið er haldið á tveggja ára fresti og næst fer það fram í Finnlandi árið 2011. Mótið er fyrir krakka og unglinga á aldrinum 12-16 ára sem æfa íþróttir hjá aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra. Fyrir þá sem hafa hug á því að komast í hópinn sem fer til Finnlands er ekki seinna vænna en að herða róðurinn við æfingar strax í dag og láta ljós sitt skína á erlendum vettvangi eftir tvö ár. Helstu afreksmenn ÍF í gegnum árin hafa jafnan stigið sín fyrstu skref á Norræna barna- og unglingamótinu sem er hugsað sem ein af fyrstu alþjóðlegu keppnunum sem fatlaðir íslenskir íþróttamenn reyna sig við.

Á fimmtudagskvöld fór fram lokaathöfn Norræna barna- og unglingamótsins og var deginum lokað með veglegu diskóteki þar sem íslenski hópurinn lét sitt ekki eftir liggja á dansgólfinu.

Nú er svo komið inn þriðja og síðasta myndasafnið á myndasíðu ÍF af íslenska hópnum í Eskilstuna en þarna eru m.a. myndir frá sundkeppninni, keppninni í frjálsum og frá lokakvöldinu.

Myndasafn: http://if.123.is/album/default.aspx?aid=151968

Mynd: Íslenski hópurinn á lokakvöldinu í Eskilstuna