Heimsókn á hjólabraut og skotfimikeppni


Fimmti dagurinn á Norræna barna- og unglingamótinu í Eskilstuna er nú að baki og var margt forvitnilegt sem dreif á dag íslenska hópsins. Hápunktur dagsins var þó heimsókn á hjólabraut þar sem fylgst var með ofurhugum á mótorhjólum keppa í svokölluðu ,,drifti“ en drift er þegar ekið er í hringi á mótorhjólum og hjólin látin renna af mikilli færni í allar beygjur.

Að venju voru æfingar í morgun en eftir hádegi hélt keppnin áfram í nýjum og framandi íþróttum og í dag var röðin komin að skotfimi. Keppt var með loftriffla og fékk íslenski hópurinn veglegar útskýringar á íþróttinni áður en hafist var handa við að skora á skífurnar. Af sex keppnisþjóðum hafnaði Ísland í 5. sæti í skotfiminni enda er það kunn staðreynd að Íslendingar vilja lítið með skotvopn hafa. Ef það er ekki Atgeirinn hans Gunnars eða Grásíða hans Gísla þá er það ekki vopn í okkar huga! Að öllu gamni slepptu var íslenski hópurinn ansi sprækur miðað við að hafa enga reynslu í íþróttinni en það þótti lítið koma á óvart að Norðmenn hefðu unnið skotkeppnina enda margfrægir fyrir skotfimi sína.

Eftir kvöldmat var haldið rétt út fyrir Eskilstuna þar sem gefur að finna mótorhjólabrautina þar sem keppnin í ,,drifti“ fór fram. Hávaðinn var mikill og vankunnátta Íslendinga á íþróttinni leyndi sér ekki en þegar keppni lauk var hópurinn orðinn sprenglærður í fræðunum.

Á morgun hefst svo keppni í sundi og hefjast leikar eldsnemma eða kl. 09:00 í fyrramálið og upphitun hefst kl. 08:00. Á fimmtudag verður svo keppni í frjálsum íþróttum og á föstudag heldur hópurinn heim til Íslands og er væntanlegur í Laugardal með rútu um kl. 17:00.

Sjá nýtt myndasafn frá Norræna barna- og unglingamótinu:
http://if.123.is/album/default.aspx?aid=151577

Mynd: Breki Arnarson mundar loftriffilinn í skotkeppninni í dag.