Sumarhátíð CP félagsins


Sumarhátíð CP félagsins fer að þessu sinni fram í Reykholti í Biskupstungum helgina 3.-5. júlí næstkomandi. 

Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi. Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags og til baka um kvöldið. Sama gamla verðið, kr 2.500.- fyrir fullorðna, 1.500.- fyrir 6-12 ára  og frítt fyrir yngstu börnin. Tekið verður við VISA og Euro.

Hoppukastali verður á svæðinu ásamt leiktækjum. Innifalið í verðinu er tjaldaðstaða eða gisting í svefnpokaplássi í Reykholtsskóla, grillaðstaða á föstudag, sund, pulsur og drykkur í hádeginu á laugardag, glæsilegur kvöldverður um kvöldið, skemmtiatriði, dans og aðgangur að dýragarðinum í Slakka.

Skráið ykkur sem fyrst á http://www.cp.is eða í síma 691-8010 (Linda) endilega hafið samband ef það eru einhverjar upplýsingar sem ykkur vantar. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir 1. júlí.