Golfæfingar í aðstöðu GK fyrir hreyfihamlaða


Sumarnámskeið í golfi fyrir hreyfihamlaða eru farin af stað en námskeiðin munu í sumar fara fram á miðvikudögum frá kl. 16-18. Magnús Birgisson verður kennari á námskeiðunum sem fara fram í æfingaaðstöðu Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði. ÍF hvetur sem flesta til að sækja námskeiðin og tilvalið að mæta í dag.

Allar nánari upplýsingar um golfsumarið í röðum fatlaðra er hægt að nálgast á skrifstofu ÍF í síma 514 4080 eða hjá Golfnefnd ÍF í síma 896 6111.