Góður félagi fallinn frá


Leifur Karlsson góður félagi og ómetanlegur liðsmaður ÍF lést sunnudaginn 6. maí sl. í Danmörku. Hann var til margra ára einn af máttarstólpum bogfimiíþróttarinnar hér á landi og til að vinna að framgangi íþróttarinnar sat Leifur m.a. í bogfiminefnd ÍF og bogfiminefnd ÍSÍ.  Alltaf var hann tilbúinn að leggja vinnu í undirbúning og skipulag Íslandsmóta ÍF í bogfimi þar sem hann var einnig þátttakandi.  Þá vann hann sem keppandi til fjölda verðlauna á innlendum vettvangi auk þess að keppa og vinna til verðlauna á Norðurlandamótum fatlaðra í bogfimi.

Leifur var sérlega áhugasamur og fróður um það sem viðkom bogfimiíþróttinni. Ásamt félögum sínum í bogfiminefnd ÍFR byggði hann upp spennandi samstarfsverkefni á milli Íslands og Þýskalands og mikil vinátta hafði skapast á milli þeirra sem þátt tóku í þessu verkefni.

Leifur Karlsson var þó fyrst og fremst maður sem  gaf mikið af sér og hafði góða nærveru. Alltaf gaf hann sér tíma til að kíkja við á skrifstofu ÍF, fá sér kaffisopa og ræða málin. Hans var saknað á skrifstofunni eftir að hann flutti til Danmerkur en tengslin héldust alltaf og þegar hann kom til Íslands var alltaf tími til að kíkja við.

Þakkir og söknuður eru efst í huga þegar góður félagi, liðsmaður og vinur er horfinn á braut.

Íþróttasamband Fatlaðra sendir fjölskyldu hans samúðarkveðjur