Sumarhátíð CP félagsins


Hin árlega sumarhátíð CP félagsins verður haldin í Reykholti í Biskupstungum helgina 3. júlí - 5. júlí nk. Verið er að vinna í dagskrá fyrir helgina og mun hún koma síðar.

Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi. Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags og til baka um kvöldið.

Sumarhátið CP félagsins er góður vettvangur fyrir bæði börn og foreldra í félaginu. Stemningin er að venju mjög góð, á laugardeginum skella flestir sér í sundlaug sem er á svæðinu og um kvöldið er kvöldverður í boði grill og gaman.

Í framhaldi af grillinu eru skemmtiatriði og diskó fyrir börn og fullorðna. Hoppukastalar og leiktæki eru á svæðinu.

Innan skamms mun koma inná heimasíðu félagsins skráningarform og þarf skráning að vera búin fyrir 1.júlí. 

www.cp.is

Mynd: Frá Sumarhátíð CP félagsins árið 2006