Bikarkeppni ÍF í sundi á Akureyri laugardaginn 13. júní


Laugardaginn 13. júní næstkomandi fer bikarkeppni ÍF í sundi fram á Akureyri í samstarfi við sundfélagið Óðinn. Keppt verður í sundlaug Akureyrar sem er 25 m. útilaug.

Skráningum í mótið ber að skila eigi síðar en 8. júní á póstfangið issi@islandia.is 

Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu ÍF í síma 514 4080 eða hjá Ástu formanni Óðins í síma 864 6403 en þegar hafa ítarupplýsingar verið sendar á aðildarfélög ÍF.

Mynd: Sveit Fjarðar hafði sigur úr býtum á bikarmóti ÍF í fyrra.