Íslandsmót ÍF í frjálsum þann 6. júní


Þann 6. júní næstkomandi fer fram Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum. Mótið fer fram á Kópavogsvelli og stendur frá kl. 10:00 um morguninn til kl. 14:00. Lágmörkum í langstökki hefur verið breytt í 1.10 m. hjá konum og 1.20 m. hjá körlum (sjá í viðhengi)

Skráningar í mótið berist á astakata@fss.is og teddik@mi.is með cc á if@isisport.is - síðasti skráningarfrestur í mótið er 2. júní
 
Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum á Kópavogsvelli , laugardaginn 6. júní 2009.
 
Upphitun hefst kl. 9.30,
Keppni hefst kl. 10.00
Mótslok áætluð um kl. 14.00
 
Mótsstjóri: Linda Kristinsdóttir
Hlaupstjóri/ræsir: Kári Jónsson
Stökkstjóri: Teódór Karlsson
Kaststjóri: Ásta Katrín Helgadóttir