Íþróttasamband Fatlaðra fagnar því að á Andrésar Andar leikunum á
Akureyri 2009 kepptu fötluð börn og unglingar á skíðum og skíðasleðum. Sérstakur
flokkur, "stjörnuflokkur" var settur upp fyrir þennan hóp. Alls átta mættu til
leiks og stóðu sig öll mjög vel. Þeir sem eru hreyfihamlaðir kepptu á sérstökum
skíðasleðum sem sérhannaðir eru fyrir hreyfihamlað skíðafólk.
Íþróttasamband Fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöð Íslands á Akureyri
hafa byggt upp samstarf frá árinu 2000 í þeim tilgangi að efla þátttöku fatlaðra
í vetraríþróttum. Samstarfsaðilar hafa verið frá Challenge Aspen og Winter Park
í Colorado. Haldin hafa verið námskeið í Hlíðarfjalli þar sem fólk hefur
komið saman víða af landinu. Síðast var haldið námskeið ÍF, VMÍ og Winter Park í
febrúar 2009 og var þátttaka mjög góð.
Skíðafélag Akureyrar,
Undirbúningsnefnd Andrésar Andar leikanna 2009, starfsfólk í Hlíðarfjalli og
aðrir þeir sem aðstoðuðu við undirbúning og framkvæmd þessa verkefnis fá
innilegar þakkir frá Íþróttasambandi Fatlaðra. Sérstakar þakkir fær Hermína
Gunnþórsdóttir, móðir Breka Arnarssonar, skíðamanns en hún tók að sér hlutverk
"sendiherra" foreldra fyrir ÍF og hefur reynst mikilvægur liðsmaður í
kynningarstarfinu.
Miðvikudagur. 29 apríl 2009