Fatlanir barna: Ný þekking - ný viðhorf


Árleg vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin á Grand hóteli 14. og 15. maí n.k. Titillinn að þessu sinni verður: Fatlanir barna: Ný þekking - ný viðhorf.

Auk almennrar dagskrár verða kynningar á nýjum íslenskum rannsóknum og þróunarverkefnum á sviði fatlana barna, bæði í stuttum erindum í ráðstefnusal og á veggspjöldum í anddyri. Einnig munu nokkur fyrirtæki kynna vörur og þjónustu.