Keppendur frá Íþróttasambandi fatlaðra tóku þátt í sundmóti Ármanns sem fram fór í Laugardalslaug 18. – 19. apríl sl. og var árangur þeirra glæsilegur en 7 Íslandsmet féllu á mótinu í flokkum fatlaðra. Eyþór Þrastarson í flokki S11,(blindir) setti sitt fyrstu Íslandsmet um helgina. Birkir Rúnar Gunnarsson átti metin og voru þau frá árunum 1995 og 1996.
Íslandsmet í 25m braut, sem voru sett um helgina:
Eyþór Þrastarson, Ægir / ÍFR S11 200 frjáls aðferð 2:26,73 18/04/09 Pálmi Guðlaugsson, Fjölnir/Fjörður S6 100 fjórsund 1:49,63 18/04/09 Eyþór Þrastarson, Ægir / ÍFR S11 400 frjáls aðferð 5:08,59 19/04/09 Pálmi Guðlaugsson, Fjölnir/Fjörður S6 100 flugsund 1:39,72 19/04/09 Pálmi Guðlaugsson, Fjölnir/Fjörður S6 100 frjáls aðferð 1:24,59 19/04/09 Hjörtur Már Ingvarsson, ÍFR S5 50 frjáls aðferð 0:54,99 19/04/09 Hjörtur Már Ingvarsson, ÍFR S5 100 frjáls aðferð 1:56,18 19/04/09