Íslandsmót ÍF í borðtennis á laugardag í TBR húsinu


Laugardaginn 28. mars næstkomandi fer fram Íslandsmót ÍF í borðtennis og verður keppt í TBR húsinu. Að þessu sinni eru þrjú aðildarfélög ÍF með skráða keppendur í mótið en það eru ÍFR, Akur og Nes.

Keppni hefst á laugardeginum kl. 10:30 og lýkur um kl. 14:00. Þetta er í fyrsta sinn sem ÍF stendur að Íslandsmóti í TBR húsinu sem jafnan er þekkt sem höfuðvígi borðtennisíþróttarinnar á Íslandi.