Jóhann sigraði í 1. flokki ófatlaðra


Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson, NES, fór mikinn um helgina þegar hann sigraði í 1. flokki karla á Íslandsmóti ófatlaðra. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem slíkt gerist og var Jóhann að vonum himinlifandi með árangur sinn um helgina.

„Maður hefur verið að berjast við þetta í nokkur ár, ein tíu, og aldrei náð svona langt í þessu hér heima hjá ófötluðum. Mér gekk vel í úrslitaleiknum við Hlöðver Hlöðversson úr KR. Ég hafði nokkra yfirburði og vann 3:1,“ sagði Jóhann í samtali við Morgunblaðið en nánar má lesa um afrek Jóhanns um helgina í blaði Moggans í dag.

Jóhann lék einnig gríðarvel í undanúrslitum mótsins um helgina þar sem hann vann Jóhannes Tómasson úr KR 3-2 eftir að hafa sigrað oddalotuna 11-9.

Mótið var síðasta keppni Jóhanns áður en hann heldur til Ungverjalands dagana 19.-23. mars næstkomandi þar sem hann tekur þátt í opna ungverska borðtennismótinu sem er 20 punkta mót. Þaðan liggur leiðin næst til Slóvakíu þann 21. apríl en það mót verður 40 punkta mót. Allt er þetta liður í undirbúningi Jóhanns sem ætlar sér að komast á Ólympíumót fatlaðra í London árið 2012.

Þá er það einnig á dagskrá hjá Jóhanni að komast á heimsmeistaramótið í Kóreu á næsta ári.