Erna á fullu við æfingar í Colorado


Erna Friðriksdóttir sendi heimasíðu ÍF mynd frá Winter Park í Colorado þar sem hún er nú við æfingar og keppni með landsliði USA. Fyrirtækið 66° Norður styrkir ÍF um ákveðna upphæð á ári og á myndinni er Erna í fatnaði frá 66° Norður sem hún fékk frá ÍF áður en hún hélt utan í janúar. Hún verður við æfingar og keppni í 3 mánuði. Erna hefur fengið staðfest keppnisleyfi til þátttöku á mótum IPC sem gefur stig til keppni á Paralympics (Ólympíumótum fatlaðra).